HeimCHF / HKD • Gjaldmiðill
add
CHF / HKD
Við síðustu lokun
9,16
Viðskiptafréttir
Um Svissneskur franki
Svissneskur franki er gjaldmiðill Sviss og Liechtenstein. Héraðið Campione d'Italia á Ítalíu notar svissneskan franka líka í staðinn fyrir evruna.
Einn franki skiptist í 100 hundraðshluta. Myntir eru 5, 10 og 20 hundraðshlutar, og ½, 1, 2 og 5 frankar. Seðlar eru 10, 20, 50, 100, 200 og 1.000 frankar. Einn franki er um 130 ISK. ISO 4217 kóðinn fyrir frankann er CHF. WikipediaUm Hong Kong-dalur
Hong Kong-dalur er opinber gjaldmiðill í Hong Kong. Einn dalur skiptist í 100 sent. Gjaldeyrisráð Hong Kong hefur umsjón með gjaldmiðlinum og er í reynd seðlabanki fyrir Hong Kong.
Bankar sem hafa leyfi gjaldeyrisráðsins mega gefa út sína eigin seðla til almennra nota í Hong Kong. Bankarnir þrír, HSBC, Bank of China og Standard Chartered Hong Kong gefa út seðla með eigin hönnun með upphæðunum HK$20, HK$50, HK$100, HK$500 og HK$1000 þar sem seðlar með sömu upphæð líkjast hver öðrum. 10 dala seðlar og mynt er aðeins gefin út af stjórnvöldum Hong Kong.
Í apríl 2016 var Hong Kong-dalur 13. mest notaði gjaldmiðill heims í gjaldeyrisviðskiptum. Dalurinn er líka notaður í Maká samhliða Makápatökum. Lengst af hefur Hong Kong-dalur verið bundinn silfurfæti eða sterlingspundi. Frá 1983 hefur dalurinn verið bundinn við Bandaríkjadal með vikmörkum. Wikipedia