HeimCZK / GBP • Gjaldmiðill
CZK / GBP
0,0340
2. maí, 08:33:00 UTC · Lagalegir fyrirvarar
Gengi
Við síðustu lokun
0,034
Viðskiptafréttir
Tékknesk króna eða tékknesk koruna er gjaldmiðill Tékklands. Ein tékknesk króna skiptist í 100 „haléřů“. Tékknesk króna hefur verið notuð sem gjaldmiðill Tékklands frá árinu 1993, þegar Tékkóslóvakía skiptist upp í tvö ríki, Tékkland og Slóvakíu. Eftirtaldir seðlar og myntir eru gildur gjaldmiðill í Tékklandi: Seðlar: 100 kč, 200 kč, 500 kč, 1000 kč, 2000 kč, 5000 kč Mynt: 1 kč, 2 kč, 5 kč, 10 kč, 20 kč, 50 kč Áður voru einnig gildir seðlarnir 20 kč og 50 kč og myntirnar 10 haléřů, 20 haléřů og 50 haléřů. Hætt var að nota 20 kč seðla 31. ágúst 2008 og 50 kč 1. apríl 2011. Hætt var að nota 10 haléřů og 20 haléřů myntirnar 31. október 2003. 50 haléřů myntin var tekin úr notkun 31. ágúst 2008. Til stóð að Tékkland tæki upp evruna árið 2012 en þeim áætlunum hefur verið slegið á frest um óákveðinn tíma vegna andstöðu tékknesks almennings við upptöku evru. Wikipedia
Breskt pund eða sterlingspund er gjaldmiðill á Bretlandi. Eitt pund skiptist í 100 penní. Árið 1971 voru eftirtaldar upphæðir gildur gjaldmiðill á Bretlandi: Seðlar: £5, £10, £20, £50 Mynt: 1p, 2p, 5p, 10p, 25p, 50p, £1, £2 Algengasta táknið fyrir breskt pund er ₤ eða £, og p fyrir penníið. Upphaflega jafngilti verðmæti þess einu pundi af 92,5% hreinu silfri með 7,5% eir, sem kallast sterling silfur. Af því er dregið nafnið sterlingspund. Fyrir 1971 var einu pundi skipt í 20 skildinga, sem hver um sig jafngilti 12 penníum. Þannig var eitt pund jafnt 240 penníum. Frá og með 1971 voru skildingar lagðir niður og verðgildi á „nýja penníinu“ varð 2,4 sinnum meira en áður hafði verið. Pundið er gefið út af Seðlabanka Englands, sem hefur einkaleyfi til þess á Englandi og í Wales, eða tveimur af fjórum löndum sem mynda Bretland, en af sögulegum ástæðum hafa fjórir bankar í Skotlandi og þrír á Norður-Írlandi leyfi til að gefa út sín eigin pund, þar á meðal gefur t.d. Danske Bank út bresk pund, merkt "Danske" á Norður-Írlandi, eftir kaup á Northern Bank. Pundið varð eitt af gjaldmiðlum Evrópusambandsins en við útgöngu breta hætti pundið að vera það. Wikipedia
Skoðaðu meira
Þú gætir haft áhuga á
Þessi listi byggir á nýlegri leit, verðbréfum sem fylgt er og annarri virkni. Frekari upplýsingar

Öll gögn og upplýsingar eru veitt „eins og þau koma fyrir“ í upplýsingaskyni fyrir einstaklinga eingöngu og eru ekki ætluð sem fjármálaráðgjöf og ekki til notkunar í viðskiptum eða fjárfestingum, í skatta- eða lagalegu skyni, í endurskoðun eða fyrir aðra ráðgjöf. Google veitir ekki fjárfestingarráðgjöf og hefur enga skoðun, tillögur eða skoðun á þeim fyrirtækjum sem eru innifalin á listanum eða öðrum verðbréfum sem þau fyrirtæki gefa út. Hafðu samband við miðlarann þinn eða fjármálafulltrúa til að staðfesta verð áður en þú hefur viðskipti. Frekari upplýsingar
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd