HeimGBP / RUB • Gjaldmiðill
add
GBP / RUB
Við síðustu lokun
107,06
Viðskiptafréttir
Um Sterlingspund
Breskt pund eða sterlingspund er gjaldmiðill á Bretlandi. Eitt pund skiptist í 100 penní. Árið 1971 voru eftirtaldar upphæðir gildur gjaldmiðill á Bretlandi:
Seðlar: £5, £10, £20, £50
Mynt: 1p, 2p, 5p, 10p, 25p, 50p, £1, £2
Algengasta táknið fyrir breskt pund er ₤ eða £, og p fyrir penníið.
Upphaflega jafngilti verðmæti þess einu pundi af 92,5% hreinu silfri með 7,5% eir, sem kallast sterling silfur. Af því er dregið nafnið sterlingspund.
Fyrir 1971 var einu pundi skipt í 20 skildinga, sem hver um sig jafngilti 12 penníum. Þannig var eitt pund jafnt 240 penníum. Frá og með 1971 voru skildingar lagðir niður og verðgildi á „nýja penníinu“ varð 2,4 sinnum meira en áður hafði verið.
Pundið er gefið út af Seðlabanka Englands, sem hefur einkaleyfi til þess á Englandi og í Wales, eða tveimur af fjórum löndum sem mynda Bretland, en af sögulegum ástæðum hafa fjórir bankar í Skotlandi og þrír á Norður-Írlandi leyfi til að gefa út sín eigin pund, þar á meðal gefur t.d. Danske Bank út bresk pund, merkt "Danske" á Norður-Írlandi, eftir kaup á Northern Bank.
Pundið varð eitt af gjaldmiðlum Evrópusambandsins en við útgöngu breta hætti pundið að vera það. WikipediaUm Rússnesk rúbla
Rússnesk rúbla gjaldmiðill Rússneska ríkjasambandsins, Abkasíu og Suður-Ossetíu. Rúblunni er skipt í 100 kópeka. Hvíta-Rússland og Transnistría nota bæði gjaldmiðla af sama nafni.
ISO 4217 gjaldeyriskóði rússnesku rúblunnar er RUB; fyrrverandi kóðinn, RUR, átti við um gildi rússnesku rúblunar fyrir 1998. Wikipedia