Viðbótarskilmálar Google korta/Google Earth

Síðast breytt: júlí 2022

Til að nota Google kort/Google Earth þarftu að samþykkja (1) þjónustuskilmála Google og (2) þessa viðbótarþjónustuskilmála Google korta/Google Earth („viðbótarskilmála Korta/Earth“). Viðbótarskilmálar Korta/Earth fela í sér með tilvísun lagalega skilmála fyrir Google kort/Google Earth og forritaskil Google korta/Google Earth.

Lestu öll þessi skjöl vandlega. Saman kallast þessi skjöl „skilmálarnir“. Í þeim kemur fram við hverju þú mátt búast frá okkur þegar þú notar þjónustur okkar og við hverju við búumst frá þér.

Ef þú notar eiginleika sem eru bara fyrir söluaðila í Google kortum til að stjórna fyrirtækjaprófílnum þínum gilda skilmálar Google fyrirtækjaprófílsins á https://support.google.com/business/answer/9292476 um þá notkun.

Þótt hún sé ekki hluti af þessum skilmálum hvetjum við þig til að lesa persónuverndarstefnu okkar til að skilja betur hvernig þú getur uppfært, stjórnað, flutt út og eytt upplýsingunum þínum.

  1. Leyfi. Svo lengi sem þú fylgir þessum skilmálum veita þjónustuskilmálar Google þér leyfi til að nota Google kort/Google Earth, þar á meðal eiginleika sem gera þér kleift að:

    1. skoða og skrifa skýringar við kort;

    2. búa til KML skrár og kortalög; og

    3. birta efni opinberlega með viðeigandi tilvísun á netinu, í myndskeiðum og á prenti.

    Frekari upplýsingar um ákveðna hluti sem þér er heimilt að gera með Google kortum/Google Earth er að finna á heimildasíðunni Notkun Google korta, Google Earth og Street View.

  2. Bannað framferði. Það að þú fylgir þessum kafla 2 er skilyrði fyrir leyfi þínu til að nota Google kort/Google Earth. Þegar þú notar Google kort/Google Earth máttu ekki (eða leyfa öðrum sem aðhafast eitthvað fyrir þína hönd að):

    1. dreifa eða selja nokkurn hluta af Google kortum/Google Earth eða búa til nýja vöru eða þjónustu sem byggist á Google kortum/Google Earth (nema þú notir forritaskil Google korta/Google Earth í samræmi við þjónustuskilmála þeirra);

    2. afrita efnið (nema þú fáir heimild til að gera það frá heimildasíðunni Notkun Google korta, Google Earth og Street View eða viðeigandi lögum um hugverkaréttindi, þar á meðal „sanngjarnri notkun“);

    3. sækja í miklu magni eða búa til fjöldastrauma með efninu (eða leyfa nokkrum öðrum að gera það);

    4. nota Google kort/Google Earth til að búa til eða bæta við annað kortatengt gagnamengi (þar á meðal korta- eða leiðsagnargagnamengi, fyrirtækjaskráningargagnagrunn, póstlista eða símasölulista) til notkunar í þjónustu sem kemur í staðinn fyrir, eða býður upp á mjög svipaða þjónustu og Google kort/Google Earth; eða

    5. nota nokkurn hluta af Google kortum/Google Earth með vörum eða þjónustu annarra aðila eða í tengslum við rauntímaleiðarlýsingar eða sjálfvirka ökutækjastjórnun, nema í gegnum ákveðna eiginleika sem Google veitir eins og Android Auto.

  3. Raunverulegar aðstæður; Eigin áhætta. Þegar þú notar kortagögn, umferð, leiðarlýsingar og annað efni Google korta/Google Earth, gætirðu lent í því að raunverulegar aðstæður eru aðrar en í niðurstöðum korta og í efninu, svo þú skalt beita eigin hyggjuviti og nota Google kort/Google Earth með þeirri áhættu sem því fylgir. Þú berð ávallt ábyrgð á eigin hegðun og afleiðingum hennar.

  4. Efnið þitt í Google Maps/Google Earth. Efni sem þú hleður upp, sendir, geymir eða móttekur í gegnum Google kort/Google Earth er háð þjónustuskilmálum Google, þar á meðal leyfinu í kaflanum „Leyfi til að nota efnið þitt“. Ef þú býrð í Frakklandi gilda viðbótarþjónustuskilmálar Google leitar um slíkt efni sem er gert öllum aðgengilegt í Google leit. Hins vegar er efni sem er eingöngu staðbundið í tækinu þínu (t.d. staðbundið geymdar KML skrár) ekki hlaðið upp eða sent til Google, og er því ekki háð því leyfi.

  5. Opinberir notendur. Ef þú notar Google kort/Google Earth fyrir hönd opinbers aðila eiga eftirfarandi skilmálar við:

    1. Gildandi lög.

      1. Kaflinn í þjónustuskilmálum Google um gildandi lög og varnarþing á ekki við um opinbera aðila á vegum borgar eða fylkis í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu.

      2. Fyrir opinbera aðila á vegum bandaríska ríkisins er þjónustuskilmálum Google varðandi gildandi löggjöf og varnarþing skipt út í heild fyrir eftirfarandi:

        „Þessir skilmálar stjórnast af og eru túlkaðir og framfylgt í samræmi við bandarísk lög, án þess að vísað sé til lagaáreksturs. Aðeins að því marki sem alríkislög leyfa það: (A) eiga lög Kaliforníuríkis (að undanskildum reglum Kaliforníu um lagaárekstur) við í fjarveru viðeigandi alríkislaga; og (B) allar deilur sem verða til vegna eða tengjast þessum skilmálum eða Google kortum/Google Earth verða eingöngu reknar fyrir alríkisdómstóli í Santa Clara sýslu í Kaliforníu, og aðilar samþykkja persónulega lögsögu þessara dómstóla.“

    2. Takmarkaður réttur bandarískra yfirvalda. Allur aðgangur bandarískra yfirvalda eða fyrir þau að Google kortum/Google Earth eða notkun á þeim fellur undir kaflann „Takmarkaður réttur bandarískra yfirvalda“ í lagalegum skilmálum Google korta/Google Earth.