Innsláttaraðferð (IME)
Innsláttaraðferðir (Input Method Editors – IME) breyta því sem slegið er inn með lyklaborðinu yfir í stafi á öðru tungumáli. Við bjóðum upp á fjölda innsláttaraðferða. Prófaðu þær.
Til að nota innsláttaraðferð þarf fyrst að kveikja á innsláttartólum. Fylgdu leiðbeiningunum til að gera innsláttartól virk í leit, Gmail, Google Drive, YouTube, Translate, Chrome og Chrome OS.
Innsláttaraðferð er táknuð með staf úr tungumálinu, t.d.
.Smelltu á táknið til að
kveikja eða slökkva á valinni insláttaraðferð eða á örina við hlið þess til að velja
annað innsláttartól. Þegar kveikt er á innsláttaraðferð dökknar grái litur hnappsins
.
Latneskar innsláttaraðferðir
Latneskar innsláttaraðferðir hjálpa fólki að skrifa á tungumálum sem notast við latneskt letur (t.d. frönsku, þýsku, spænsku, portúgölsku, ítölsku og hollensku) með venjulegu lyklaborði. Meðal eiginleika eru sjálfvirk áherslumerki, villuleiðrétting og forskeyti.
Til að nota latneska innsláttaraðferð skrifarðu inn stafi án áherslumerkja og stungið verður upp á réttu orði með viðeigandi sérstöfum. Ef þú skrifar t.d. „franca“ á frönsku færðu upp tillögu þar sem lokið er við forskeytið.
Ýttu á TAB til að nota tillöguna „français“. Þá er hægt að ýta á BIL/ENTER til að nota „franca“ óbreytt.
Ef „francais“ er slegið inn í heild sinni verður útkoman sjálfkrafa með réttum áherslumerkjum. Ýttu á BIL/ENTER til að nota tillöguna „français“.
Til að fá fleiri tillögur ýtirðu á BAKKLYKILINN og þú færð allar tillögur upp.
Fyrsta tillagan er besta samsvörun með sjálfvirkum áherslumerkjum sem er auðkennd sjálfkrafa. Önnur tillagan er frumtextinn sjálfur. Þriðja og fjórða tillaga eru tillögur þar sem lokið er við forskeyti. Fimmta og sjötta tillaga eru tillögur að leiðréttingu stafsetningar.
Til að velja orð úr mörgum tillögum gerirðu eitt af eftirfarandi:
- Ýttu á BIL/ENTER til að velja auðkennda tillögu.
- Smelltu á hana.
- Sláðu inn töluna við hliðina á orði.
- Flettu í gegnum listann yfir tillögur á síðu með lyklunum UPP/NIÐUR. Flettu síðunum með lyklunum UPP/NIÐUR.
innsláttartól